Bikarúrslitaráðstefna laugardaginn 16. ágúst 2014
Í tengslum við úrslitaleikinn í Borgunarbikarkeppni karla mun Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir ráðstefnu. Úrslitaleikur Borgunarbikarkeppni karla fer fram laugardaginn 16. ágúst kl. 16:00. Ráðstefnan hefst kl. 9:00 og er öllum opin en hún fer fram í Laugardalnum. Þátttökugjald er 3.500 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ en 5.000 krónur fyrir aðra. Miði á úrslitaleikinn og hádegisverður er innifalinn í verðinu. Skráning er hafin með tölvupósti á netfangið kthi@kthi.is eða dagur@ksi.is - taka þarf fram nafn og kennitölu. Greiðsla fer fram við innganginn.Aðalfyrirlesarar eru Lars Lagerback, annar þjálfara A-landsliðs karla og landi hans, Björn Andersson.
Lars mun fjalla um hvernig setur maður saman lið sem þarf að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi. Hann mun síðan stýra æfingu þar hann vinnur með sama efnið.
Björn Andersson hefur átt afar spennandi feril sem leikmaður og þjálfari. Hann spilaði með Öster í Svíþjóð en þaðan fór hann til FC Bayern München og spilaði þar í þrjú tímabil. Hann vann Evrópukeppni meistaraliða með Bayern 1975 en leikmannaferillinn fjaraði síðan út eftir erfið hnémeiðsli. Björn var einnig landsliðsmaður Svía og spilaði m.a. á HM í Þýskalandi 1974. Nú nýlega hætti hann störfum hjá FC Bayern München sem yfirþjálfari unglingaakademíunnar en þar hafði hann starfað í 14 ár. Hann starfar þó enn fyrir klúbbinn sem talent scout á Norðurlöndunum og Englandi.
Björn mun fjalla um reynslu sýna í FC Bayern München og gefa góð ráð varðandi þjálfun yngri leikmanna og stýra æfingu sem tengist viðfangsefninu.
Dagskrá, laugardaginn 16. ágúst:
9:00 Ávarp formanns KÞÍ - Sigurður Þórir Þorsteinsson
9:10 Hvernig setur maður saman lið sem þarf að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi – Lars Lagerback (Bóklegt)
10:00 Þjálfun yngri leikmanna – leið FC Bayern München - Björn Andersson (Bóklegt)
11:00 Matarhlé
11:45 Lars Lagerback (Verklegt)
13:00 Björn Andersson (Verklegt)
14.15 Fjallað um liðin sem leika til úrslita
14:30 Þjálfari liðanna sem leika til úrslita spjalla um leikinn og undirbúning
15:00 Ráðstefnuslit
16:00 Úrslitaleikur Borgunarbikars karla
Þátttaka á ráðstefnunni gildir sem 7 tímar í endurmenntun KSÍ A (UEFA A) og KSÍ B (UEFA B) þjálfara.