Styrkleikalisti FIFA kvenna - Ísland niður um eitt sæti
Íslenska kvennalandsliðið er í sautjánda sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Íslenska liðið fer niður um eitt sæti frá síðata lista en Bandaríkin eru sem fyrr í efsta sæti og Þjóðverjar koma þar á eftir.
Af mótherjum Íslands í undankeppni HM er það að frétta að Danir eru í 15. sæti, Sviss í 19. sæti og. Serbía er í 44. sæti, Ísrael í 55. sæti og Malta er í 97. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA.