A kvenna - Miðasala hafin á Ísland - Malta
Miðasala er hafin á leik Íslands og Möltu í undankeppni HM en leikið verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 19. júní kl. 18:00. Íslenska liðið er í harðri baráttu um annað sætið í riðli sínum þegar fjórir leikir eru eftir hjá liðinu. Allir þeir leikir eru á heimavelli og markar þessi leikur gegn Möltu upphafið af þessari heimaleikjahrinu.
Stelpurnar voru að koma frá Danmörku þar sem þær gerðu jafntefli gegn heimastúlkum en landslið Möltu lék gegn Serbum á laugardag og biðu þar lægri hlut, 5 - 0. Íslenska liðið vann öruggan sigur á Möltu þegar þessar þjóðir mættust ytra fyrr á árinu og eru staðráðnar í því að fylgja því eftir á heimavelli.
Miðaverð:
Fullorðnir (17 ára og eldri): kr. 1.000
Frítt fyrir börn yngri 16 ára og yngri
Mætum á völlinn og styðjum stelpurnar okkar.