U21 karla - Tveggja marka tap á Skaganum
Svíar höfðu betur gegn Íslendingum í vináttulandsleik sem fram fór á Akranesi í kvöld. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Svía sem skoruðu mark í hvorum hálfleik. Ellefu nýliðar voru í íslenska hópnum í þessum leik og komu þeir allir við sögu.
Svíar höfðu undirtökin í leiknum og komust yfir á 43. mínútu og bættu við öðru markinu undir lok leiksins. Íslenska liðið var inn í leiknum allan tímann en gekk ekki vel að skapa sér opin marktækifæri.
Framundan hjá íslenska liðinu er tveir síðustu leikirnir í undankeppni EM en þar situr Ísland í öðru sæti síns riðils. Leikið verður gegn Armenum 3. júní hér á landi og svo ytra gegn Frökkum, mánudaginn 8. september.