Styrkleikalisti FIFA - Ísland upp um 6 sæti
Á nýjum styrkleikalista karlalandsliða, sem birtur var í morgun, er Ísland í 52. sæti og fer upp um sex sæti frá síðasta lista. Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans, Þjóðverjar koma þar næstir og Brasilía í þriðja sæti.
Af mótherjum Íslands í undankeppni EM er það að frétta að Holland er í 15. sæti, Tékkar í 34. sæti og Tyrkir í 35. sæti. Lettland er í 109. sæti og Kasakstan í 124. sæti styrkleikalista FIFA.