• mið. 04. jún. 2014
  • Dómaramál

Þóroddur dæmir í Liechtenstein

Þóroddur Hjaltalín
Thoroddur-Hjaltalin

Þóroddur Hjaltalín dæmir í dag, miðvikudaginn 4. júní,  leik Liechtenstein og Úkraínu í undankeppni EM hjá U21 karla en leikið verður í Eschen í Liechtenstein.  Þóroddi til aðstoðar verða þeir Áskell Þór Gíslason og Birkir Sigurðarson og varadómari er Gunnar Jarl Jónsson.

Þessi leikur er í 5. riðli undankeppninnar en Liechtenstein er án stiga eftir sex leiki en Úkraína hefur 6 stig eftir þrjá leiki.  Króatar eru í efsta sætinu með 15 stig eftir sex leiki.