U21 karla - Hópurinn sem mætir Svíum á Akranesi
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn fyrir vináttulandsleik gegn Svíum sem fram fer á Norðurálsvellinum á Akranesi, fimmtudaginn 5. júní kl. 19:15. Alls eru 11 leikmenn í hópnum sem ekki hafa áður leikið U21 landsleik.
Ekki var hægt að velja leikmenn sem leika í Noregi þar sem þeir eru að leika með félagsliðum sínum á sama tíma.
Þjóðirnar hafa mæst sjö sinnum í þessum aldursflokki og hefur hvor þjóð unnið þrjá leiki en einu sinni hefur orðið jafntefli.