U19 karla – Stórt tap gegn Serbum
Strákarnir í U19 náðu sér engan veginn á strik í dag þegar leikið var gegn Serbum í milliriðli EM en leikið er í Dublin. Lokatölur urðu 6 – 0 fyrir Serba sem leiddu með tveimur mörkum í leikhléi.
Serbar höfðu undirtökin mest allan leikinn og komust yfir með marki á 33. mínútu og bættu svo við öðru, úr vítaspyrnu, fimm mínútum síðar. Upphaf síðari hálfleiks var íslenska liðinu mjög erfitt því Serbar bættu við þremur mörkum á fimm mínútna kafla snemma í hálfleiknum og eftir það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn mundi lenda.
Íslenska liðið á því ekki lengur möguleika á efsta sæti riðilsins en liðið leikur lokaleik sinn í riðlinum, gegn Tyrkjum, á mánudaginn.