• mán. 28. apr. 2014
  • Dómaramál

Aðgönguskírteini fyrir dómara og eftirlitsmenn 2014

Dómaraflauta eða hljóðfæri?
domaraflauta

Þeir dómarar sem dæmt hafa tilskilinn fjölda leikja og hafa sent skrifstofu KSÍ mynd af sér, geta sótt aðgönguskírteini sín á skrifstofu KSÍ á föstudaginn. Öruggara er þó að hringja á undan sér og fá staðfest að skírteinið sé tilbúið.

Þeir sem ekki hafa sent inn mynd eru hvattir til þess að gera það hið fyrsta á ksi@ksi.is. Athugið að skrifstofa KSÍ geymir ekki myndir frá fyrri árum.

Í reglugerð KSÍ um aðgönguskírteini, grein 2.2 segir:

"Aðgönguskírteini DE  skal jafnframt  gefið út til eftirlitsmanna,  lands-, héraðs- og unglingadómara, sem luku a.m.k. 15 störfum árið áður eða 20 störfum á undangengnum tveimur árum.  Unglingadómarar á fyrsta starfsári skulu þó fá aðgönguskírteini DE að loknum 10 störfum."