Sjötta skýrsla UEFA um fjármál evrópskra félaga
UEFA hefur birt sjöttu útgáfu af árlegri skýrslu sinni um evrópska knattspyrnu - UEFA Club Licensing Benchmarking Report - sem byggir á leyfisgögnum þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfi í aðildarlöndum UEFA, alls um 700 knattspyrnufélögum að ýmsum stærðum og gerðum.
Farið er um víðan völl í skýrslunni, en megin þunginn er sem fyrr um fjármál.