Leikmaður Augnabliks úrskurðaður í tímabundið bann
Á fundi Aga-og úrskurðarnefndar KSÍ, 23. apríl 2014, var Hrafnkell Freyr Ágústsson, Augnabliki, úrskurðaður í tímabundið leikbann til 6 vikna vegna brottvísunar í leik Vatnaliljanna og Augnabliks í mfl. karla 16. apríl 2014.
Leikmanninum er því óheimil þátttaka í öllum opinberum mótum innan vébanda KSÍ frá 23. apríl 2014 til og með 3. júní 2014.