U19 kvenna - Leikið við Færeyjar í dag
Stelpurnar í U19 leika í dag fyrri leik sinn í undirbúningsmóti UEFA en leikið er í Færeyjum. Fyrri leikur Íslands er gegn heimastúlkum og hefst leikurinn kl. 09:00 að íslenskum tíma. Úlfar Hinriksson hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það þannig skipað:
Byrjunarliðið:
Ásta Vigdís, Hrefna Guðrún, Heiddís Sigurjóns, Heiða Rakel, Arna Dís, Rakel Jóns, Guðrún Karitas fyrirliði, Lilly Rut, Alda Ólafs, Hulda Hrund og Esther Rós.
Fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ.
Tvær breytingar voru gerðar á hópnum áður en haldið var til Færeyja. Þær Rakel Jónsdóttir úr Fylki og Málfríður Anna Eiríksdóttir úr Val koma inn í hópinn í stað þeirra Ingibjargar Sigurðardóttur og Steinunnar Sigurjónsdóttur, sem eru meiddar.
Seinni leikur liðsins verður svo á morgun gegn Skotum.