Mæta Færeyingum og Skotum í undirbúningsmóti UEFA - Uppfært
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið 18 leikmenn úr 13 félagsliðum í landslið Íslands sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Færeyjum í apríl. Um er að ræða leikmenn fædda 1996 og síðar. Fimm koma úr Breiðabliki, tvær úr KR, en einn leikmaður úr ellefu öðrum félögum. Leikið verður gegn Færeyjum og Skotlandi dagana 22. og 23. apríl.
Nafn | Félag |
Hrefna Guðrún Péturssdóttir | Afturelding |
Andrea Rán Hauksdóttir | Breiðablik |
Steinunn Sigurjónsdóttir | Breiðablik |
Ingibjörg Sigurðardóttir | Breiðablik |
Esther Rós Arnardóttir | Breiðablik |
Arna Dís Arnþórsdóttir | Breiðablik |
Alda Ólafsdóttir | FH |
Hulda Hrund Arnarsdóttir | Fylkir |
Heiða Rakel Guðmundsdóttir | Haukar |
Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir | HK |
Heiðdís Sigurjónsdóttir | Höttur |
Guðrún Karítas Sigurðardóttir | ÍA |
Sabrína Lind Adolfsdóttir | ÍBV |
Sigríður María Sigurðardóttir | KR |
Hulda Ósk Jónsdóttir | KR |
Berglind Hrund Jónasdóttir | Stjarnan |
Katla Rún Arnórsdóttir | Valur |
Lillý Rut Hlynsdóttir | Þór |