Leikmaður Víðis úrskurðaður í 5 leikja bann
Á fundi Aga-og úrskurðarnefndar KSÍ, 15. apríl 2014, var Gylfi Örn Á Öfjörð úrskurðaður í 5 leikja bann í vegna brottvísunar í leik Víðis og Ísbjarnarins í Lengjubikar karla sem fram fór 5. apríl síðastliðinn.
Gylfi viðhafði hátterni er brýtur gegn 16. grein reglugerðar KSÍ um aga-og úrskurðarmál. Í samræmi við nefnda grein er Víðir jafnframt sektað um kr. 100.000.-.