Ólöglegur leikmaður með Fram í Lengjubikarnum
Í samræmi við greinar 10.1 og 11.2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Aron Þórður Albertsson lék ólöglegur með Fram gegn BÍ/Bolungarvík í Lengjubikar karla þann 4. apríl síðastliðinn. Leikmaðurinn átti að taka út leikbann vegna 3ja áminninga.
Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, greinum 10.1 og 11.2 segir:
10. SEKTIR
10.1 Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000.
11. STJÓRN KEPPNINNAR
11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.
Neðangreindur leikmaður lék ólöglegur með Fram:
Nafn leikmanns: Aron Þórður Albertsson
Leikur: Fram – BÍ/Bolungarvík
Dagsetning: 4. apríl 2014
Ástæða: Leikmaðurinn átti að taka út leikbann vegna 3ja áminninga.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð eru úrslit leiksins skráð 0-3 og Fram er sektað um kr. 100.000.-