Hættir með U19 kvenna eftir 15 ár og 104 leiki
Ólafur Þór Guðbjörnsson hefur tilkynnt að hann muni hætta þjálfun U19 landsliðs kvenna að loknum milliriðlinum sem liðið lék í núna í apríl. Fyrsti leikur liðsins undir stjórn Ólafs Þórs var í ágúst 1999 og hefur hann því verið við stjórnvölinn í tæp 15 ár og skilað frábæru starfi.
Í heildina hefur U19 landslið kvenna leikið 107 landsleiki frá árinu 1997, þegar það lék sinn fyrsta leik. Vanda Sigurgeirsdóttir stjórnaði liðinu í þeim leik, en Ólafur tók við stjórninni í næsta leik, sem kom þó ekki fyrr en 1999. Áður hafði Ólafur stjórnað U17 landsliði kvenna í 12 leikjum árið 1197-1999, allt leikir í Norðurlandamótum. Sumarið 2009 lék U19 kvenna í úrslitakeppni EM í Hvíta-Rússlandi, en á sama tíma voru leiknir tveir vináttuleikir við Færeyinga í þessum aldurshópi og stjórnaði Úlfar Hinriksson liðinu í þeim leikjum í fjarveru Ólafs Þórs. Þannig hefur Ólafur stjórnað U19 landsliði kvenna í öllum leikjum þess frá upphafi nema þremur!