A kvenna - Stelpurnar komnar til Tel Aviv
Kvennalandsliðið er komið til Ísrael, nánar tiltekið Tel Aviv en þangað kom liðið seint í gærkvöldi eftir langt ferðalag. Framundan er leikur gegn heimastúlkum í undankeppni HM en leikið verður á laugardaginn. Liðið heldur svo til Möltu þar sem leikið verður, í sömu keppni, fimmtudaginn 10. apríl.
Liðið kom á hótel hér í Tel Aviv upp úr miðnætti að staðartíma í gær en tímamismunurinn er þrír tímar á milli Ísraels og Íslands. Í morgun voru aðstæður skoðaðar og létt hreyfing var hjá leikmönnum til að ná ferðaþreytunni út úr líkamanum. Önnur æfing er svo síðar í dag en æft verður á keppnisvellinum á morgun, Ramat Gan. Hótelið hér er glæsilegt og veðráttan Frónbúum mjög að skapi.
Þessir leikir sem framundan eru eru mikilvægir í baráttunni um að komast á HM 2015 og verður spennandi að fylgjast með ferðalagi stelpnanna á næstu dögum.
Myndir og myndbönd frá Tel Aviv má finna á Facebook-síðu KSÍ.