Þriggja marka tap gegn Portúgal hjá U17 karla
U17 landslið karla tapaði með þremur mörkum í dag, mánudag, í síðasta leik sínum í milliriðli fyrir EM. Portúgal hafði unnið báða sína leiki í milliriðli fyrir EM U17 karla, gegn Lettlandi og Úkraínu, með sömu markatölu, 3-0, og sú varð einnig raunin gegn Íslandi.
Fyrsta merkið leit dagsins ljós eftir tuttugu mínútna leik og tvö mörk með þriggja mínútna millibili í seinni hálfleik gerðu út um vonir íslenska liðsins.
Á sama tíma lögðu Úkraínumenn Letta með fimm mörkum gegn einu og höfnuðu því í öðru sæti riðilsins með sex stig, en Ísland í því þriðja með eitt stig, eins og Lettland, en íslenska liðið var með betri markatölu þrátt fyrir að hafa ekki náð að skora mark í leikjunum þremur.
Milliriðillinn fór Fram í Portúgal og var greinilegt að heimamenn voru með sterkasta liðið. Spennandi verður að fylgjast með þeirra liði í úrslitakeppninni í sumar.