Markalaust hjá U17 karla gegn Lettum
Þrátt fyrir að vera umtalsvert sterkari aðilinn gegn Lettlandi tókst U17 landsliði karla ekki að koma knettinum í markið þegar liðin mættust í milliriðli EM í dag, föstudag, og lauk leiknum með markalausu jafntefli. Leikurinn fór fram á Complexo de Sportivo í Tocha í Portúgal við ágætar aðstæður. Nánar má lesa um leikinn og atvik hans á vef UEFA.
Portúgal vann svo 3-0 sigur á Úkraínu og eru Portúgalar þar með öruggir um efsta sætið í milliriðlinum og eru þegar komnir í úrslitakeppnina.
Lokaumferðin verður leikin á mánudag og þá hefjast báðir leikir riðilsins á sama tíma, eða kl. 15:00 að íslenskum tíma. þar mætast Íslendingar og Portúgalar annars vegar, en Úkraínumenn og Lettar hins vegar.