U19 kvenna sem leikur í EM-milliriðli í Króatíu tilkynnt
U19 landslið kvenna leikur í milliriðli fyrir EM í apríl og fer riðillinn fram í Króatíu. Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt leikmannahópinn. Hópurinn telur 18 leikmenn og koma þeir úr átta félögum.
Leikdagarnir eru 5., 7. og 10 apríl og er Ísland í riðli með Króatíu, Skotlandi og Rússlandi. Liðið sem hafnar í efsta sæti kemst í úrslitakeppnina, sem fram fer í Noregi í júlí.
U19 landslið Íslands
Nafn | Félag |
Andrea Rán Hauksdóttir | Breiðablik |
Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir | Breiðablik |
Guðrún Arnardóttir | Breiðablik |
Ingibjörg Sigurðardóttir | Breiðablik |
Telma H. Þrastardóttir | Breiðablik |
Eyrún Eiðsdóttir | ÍA |
Hanna Kristín Hannesdóttir | KR |
Hulda Ósk Jónsdóttir | KR |
Sigríður María S. Sigurðardóttir | KR |
Hrafnhildur Hauksdóttir | Selfoss |
Karitas Tómasdóttir | Selfoss |
María Selma Haseta | Sindri |
Berglind Hrund Jónasdóttir | Stjarnan |
Elín Metta Jensen | Valur |
Hildur Antonsdóttir | Valur |
Ingunn Haraldsdóttir | Valur |
Svava Rós Guðmundsdóttir | Valur |
Sandra María Jessen | Þór |