U17 karla - Hópurinn sem leikur í Portúgal
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur í milliriðli EM í Portúgal dagana 26. - 31. mars. Mótherjarnir verða, auk heimamanna, Lettar og Úkraínumenn en fyrsti leikurinn er gegn síðastnefndu þjóðinni.
Sigurvegari riðilsins tryggir sér sæti í úrslitakeppni EM sem fram fer á Möltu, 9. - 21. maí.