Öll þátttökuleyfi 2014 veitt
Seinni fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2014 fór fram í dag, föstudaginn 14. mars. Teknar voru fyrir umsóknir félaganna í efstu tveimur deildum karla um þátttökuleyfi 2014. Niðurstaðan var sú að allar umsóknir voru samþykktar og hafa öll 24 félögin því fengið útgefin leyfi fyrir sumarið.
Á fundinum kynnti leyfisstjóri stöðu mála hjá félögunum sem undirgangast leyfiskerfið, farið var yfir stöðu hvers félags um sig og fylgigögn með leyfisumsóknum skoðuð gaumgæfilega.
Leyfiskerfi - 2014: Ákvarðanir | ||
Félag | Ákvörðun | Athugasemd |
BÍ/Bolungarvík | Samþykkt | |
Breiðablik | Samþykkt | |
FH | Samþykkt | Aga- og úrskurðarnefnd vegna greinar 22 |
Fjölnir | Samþykkt | |
Fram | Samþykkt | Aga- og úrskurðarnefnd vegna greinar 42 |
Fylkir | Samþykkt | |
Grindavík | Samþykkt | |
Haukar | Samþykkt | |
HK | Samþykkt | |
ÍA | Samþykkt | |
ÍBV | Samþykkt | Aga- og úrskurðarnefnd vegna greinar 22 |
KA | Samþykkt | |
Keflavík | Samþykkt | |
KR | Samþykkt | Aga- og úrskurðarnefnd vegna greinar 22 |
KV | Samþykkt | |
Leiknir R. | Samþykkt | |
Selfoss | Samþykkt | |
Stjarnan | Samþykkt | |
Tindastóll | Samþykkt | Aga- og úrskurðarnefnd vegna greinar 22 |
Valur | Samþykkt | |
Víkingur Ól. | Samþykkt | |
Víkingur R. | Samþykkt | |
Þór | Samþykkt | |
Þróttur R. | Samþykkt | Aga- og úrskurðarnefnd vegna greinar 39 |
Málum sex félaga verður vísað til aga- og úrskurðarnefndar, sem ákveður viðurlög.
Grein 39 - Unglingaþjálfarar
Þróttur uppfyllti ekki grein 39. Aðalþjálfari 2. flokks karla hjá félaginu uppfyllir ekki menntunarkröfur - er með 1. stig en þarf KSÍ-B og 5. stig að auki. Málinu verður vísað til aga- og úrskurðarnefndar, sem ákveður viðurlög.
Grein 22 - Dómgæsla og knattspyrnulögin
Fjögur félög – FH, ÍBV, KR og Tindastóll - uppfylltu ekki grein 22. Enginn fulltrúi þessara félaga sótti fund KSÍ um dómgæslu og knattspyrnulögin í apríl 2013 og enginn sambærilegur fundur var haldinn á vegum viðkomandi félaga. Málunum verður vísað til aga- og úrskurðarnefndar, sem ákveður viðurlög.
Grein 42 – Skylda um endurráðningu á leyfistímabilinu
Fram uppfyllti ekki grein 42. Í byrjun júní 2013 var tilkynnt um nýjan þjálfara aðalliðs meistaraflokks Fram. Sá þjálfari sem var ráðinn uppfyllti ekki skilyrði um menntun. Að 60 dögum liðum var þjálfarinn enn við störf og nýr þjálfari sem uppfyllti skilyrði um menntun hafði ekki verið ráðinn. Þjálfarinn sem var ráðinn í byrjun júní gegndi því starfi til loka keppnistímabilsins. Málinu verður vísað til aga- og úrskurðarnefndar, sem ákveður viðurlög.