U19 kvenna - Tap í seinni leiknum gegn Finnum
Stelpurnar í U19 biðu lægri hlut gegn stöllum sínum frá Finnlandi í síðari vináttulandsleik liðanna sem leikinn var í Finnlandi. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir heimastúlkur sem leiddu með einu marki í leikhléi.
Íslenska liðið átti töluvert betri leik í seinni leiknum heldur þeim fyrri, sem einnig lauk með sigri Finna. Þrátt fyrir ágætar marktilraunir tókst íslenska liðinu ekki að skora og þær finnsku skoruðu mark beint úr aukaspyrnu í fyrri hálfleiknum og bættu svo við öðru marki á lokamínútu leiksins.
Þessir vináttulandsleikir voru góður undirbúningur fyrir keppni liðsins í milliriðlum EM en íslenska liðið leikur í Króatíu og hefur leik 5. apríl. Auk heimastúlkna verður leikið gegn Skotum og Rússum.