U19 kvenna - Finnskur sigur í fyrri leiknum
Stelpurnar í U19 töpuðu gegn Finnum í fyrri vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Eerikkilä Sport School í dag. Lokatölur urðu 4 - 1 fyrir heimastúlkur sem leiddu í leikhléi, 2 - 0.
Sigur Finna var sanngjarn en helst til of stór miðað við gang leiksins. Það var Hanna Kristín Hannesdóttir sem minnkaði muninn fyrir Ísland í 2 - 1 eftir sendingu frá fyrirliðanum Söndru Maríu Jessen.
Liðin eigast við aftur, á sama stað, fimmtudaginn 13. mars og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma.