A kvenna - Kínverjar lagðir á Algarve
Ísland vann sætan sigur á Kínverjum í lokaleik liðsins í riðlakeppninni á Algarve mótinu í Portúgal. Íslenska liðið vann með einu marki gegn engu og kom markið í uppbótartíma þegar Fanndís Friðriksdóttir skoraði beint úr hornspyrnu.
Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og litu engin marktækifæri dagsins ljós í fyrri hálfleiknum og staðan því markalaus í leikhléi. Sama var upp á teningnum langt fram eftir síðari hálfleiknum en íslenska liðið var þó heldur sterkara án þess að skapa sér marktækifæri. Siðust mínútur leiksins reyndust svo mjög fjörugar. Rakel Hönnudóttir átti skot í stöng á 85. mínútu og eftir darraðadans í teignum björguðu þær kínversku á marklínu. Það var svo í uppbótartíma að Fanndís Friðriksdóttir tók hornspyrnu og sigldi boltinn framhjá öllum og endaði í netinu við mikil fagnaðarlæti íslenska liðsins.
Þessi sigur þýðir að íslenska liðið mætir því sænska í leik um þriðja sætið á miðvikudaginn en Þjóðverjar og Japanir leika til úrslita á mótinu.