Byrjunarlið Íslands gegn Noregi á Algarve í dag
Byrjunarliðið Íslands gegn Noregi hefur verið opinberað og má sjá það með því að smella hér að neðan. Fjölmargar breytingar eru gerðar frá leiknum gegn Þýskalandi. Freyr, landsliðsþjálfari vill að allir leikmenn spili á mótinu.
Þóra B. Helgadóttir, markmaður, leikur sinn 100 leik fyrir íslenska landsliðið í leiknum. Í tilefni af því mun hún bera fyrirliðabandið í leiknum. Þóra lék sinn fyrsta landsleik gegn Bandaríkjunum árið 1998, þá 17 ára gömul.
Byrjunarlið Íslands
Markmaður:
Þóra Björg Helgadóttir
Varnarmenn:
Anna María Baldursdóttir - Glódís Perla Viggósdóttir - Mist Edvardsdóttir - Hallbera G. Gísladóttir
MIðjumenn:
Þórunn Helga Jónsdóttir - Dóra María Lárusdóttir - Sara Björk Gunnarsdóttir
Kantmenn:
Fanndís Friðriksdóttir - Katrín Ómarsdóttir
Framherji:
Elín Metta Jensen