Æfingar framundan hjá U16 U17 og U19 kvenna - Uppfærðir æfingatímar
Helgina 8. - 9. mars verða æfingar hjá U16, U17 og U19 kvenna og fara þær fram í Kórnum og Egilshöll. Landsliðsþjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið leikmenn á þessar æfingar og má sjá nöfn þeirra hér að neðan.
Uppfært 7. mars
Því miður þarf að breyta æfingatímum og staðsetningum hjá U16, U17 og U19 kvenna um helgina og verða æfingarnar sem hér segir.
Laugardagur – Fífan, búningsaðstaða á Kópavogsvelli.
15:45 - 17:15 U19
16:45 - 18:15 U16
17:45 - 19:15 U17
Sunnudagur - Egilshöll
09:00 - 10:30 U16
10:30 - 12:00 U19 og U17