Byrjunarlið U21 karla gegn Kasakstan í dag
U21 landslið karla mætir Kasakstan í undankeppni EM 2015 í dag, miðvikudag. Leikið er í Astana og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með gangi mála á vef UEFA.
Með sigri í leiknum taka strákarnir okkar stórt skref í átt að því markmiði að tryggja sér annað af efstu sætum riðilsins og þar með þátttökurétt í umspili um sæti í lokakeppni EM 2015.
Frakkar unnu nauman sigur á Hvít-Rússum í gær, 1-0 með marki á annarri mínútu uppbótartíma, og eru með 6 stiga forystu á toppi riðilsins, en Ísland á leikinn við Kasakstan til góða.
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið. Stillt er upp í leikaðferðina 4-4-2 og ljóst að Ísland mun sækja til sigurs, enda um lykilleik í riðlinum að ræða.
Lið Íslands gegn Kasakstan
Markvörður
1 - Rúnar Alex Rúnarsson
Varnarmenn
4 - Orri Sigurður Ómarsson
2 - Sverrir Ingi Ingason (fyrirliði)
3 - Hjörtur Hermannsson
5 - Hörður Björgvin Magnússon
Miðjumenn
9 - Jón Daði Böðvarsson
7 - Andri Rafn Yeoman
6 - Guðmundur Þórarinsson
8 - Arnór Ingvi Traustason
Sóknarmenn
10 - Hólmbert Aron Friðjónsson
11 - Kristján Gauti Emilsson
Varamenn
12 – Fredrik August Albrecht Schram
13 – Emil Atlason
14 – Árni Vilhjálmsson
15 – Sigurður Egill Lárusson
16 – Tómas Óli Garðarsson
17 – Gunnar Þorsteinsson
18 – Emil Pálsson