A karla - Vináttulandsleikur gegn Wales framundan
Framundan er vináttulandsleikur hjá karlalandsliði okkar gegn Wales á morgun, miðvikudaginn 5. mars kl. 19:45. Liðið æfði í dag á æfingasvæði úrvalsdeildarliðs Cardiff en það er í göngufæri frá hóteli íslenska liðsins. Létt æfing verður þar einnig á leikdag en æfingavellirnir eru nokkuð blautir eftir miklar rigningar síðustu misseri en engu að síður í þokkalegu ástandi.
Allir leikmenn hópsins tóku virkan þátt í æfingunni í dag en restin af deginum fór í fundahöld, hvíld og ýmiskonar meðhöndlun hjá starfsmönnum landsliðsins. Þá má ekki gleyma því að boðið var upp á létta afmælisköku með hádegismatnum þar sem Theodór Elmar Bjarnason heldur upp á 27 ára afmæli sitt í dag.
Ekki er búist við öðru en að flestir lykilmenn heimamanna verði reiðubúnir á morgun, að undanskildum Joe Ledley sem á við meiðsli að stríða.
Heimamenn búast við 10.000 - 15.000 áhorfendum á leikinn en hluti leikvangsins verður lokaður en hann tekur um 27.000 manns í sæti.