U17 karla - Hópurinn sem mætir Norðmönnum - Uppfært
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem mætir Norðmönnum í tveimur vináttulandsleikjum 28. febrúar og 2. mars. Leikirnir fara báðir fram í Kórnum en leikirnir eru liður í undirbúningi fyrir keppni U17 karla sem leikur í milliriðli EM í Portúgal í mars.
Uppfært 27. febrúar
Fannar Orri Sævarsson, Keflavík, hefur einnig verið valinn í U17 hópinn fyrir þessa tvo leiki. Telur hópurinn nú 21 leikmann.