Hæfileikamótun KSÍ að hefjast
Þessa dagana er Hæfileikamótun KSÍ að fara af stað og er það Þorlákur Árnason sem fer fyrir verkefninu. Fyrsti staðurinn sem Þorlákur heimsækir er Hornafjörður en fyrirhuguð dagskrá í febrúar er svohljóðandi:
- 6. og 7. febrúar Hornafjörður
- 11. og 12. febrúar Vestmannaeyjar
- 19. febrúar Keflavík (æfingar fyrir Suðurnes)
- 21. febrúar Hveragerði (æfingar fyrir Suðurland)
- 25. febrúar Akranes (æfingar fyrir Vesturland)
Í mars og apríl verða síðan æfingar fyrir Norður-og Austurland, á Ísafirði og á höfuðborgarsvæðinu.
Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka á aldrinum 13 - 15 ára.
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að;
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
- Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
- Koma á móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
- Koma á móts leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu.
Nánari upplýsingar veitir Þorlákur Árnason, thorlakur@ksi.is