Úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna um komandi helgi
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og fara þær æfingar fram í Kórnum og Egilshöll. Landsliðsþjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnson, hafa valið leikmannahópa á þessar æfingar og má sjá þá hér að neðan.