Völsungur auglýsir eftir framkvæmdastjóra
Íþróttafélagið Völsungur á Húsavík auglýsir hér með stöðu framkvæmdastjóra félagsins, með aðsetur á Húsavík. Leitað er að metnaðarfullum, jákvæðum og áhugasömum einstaklingi sem er tilbúinn að taka virkan þátt í starfsemi og þróun félagsins. Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins má finna á heimasíðu þess, www.volsungur.is
Starfssvið
· Umsjón með íþrótta- og æskulýðsstarfi félagsins.
· Koma að mótun stefnu félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Áhugasamur um íþrótta- og æskulýðsstarf.
· Starfsreynsla með börnum og ungmennum
· Stjórnunarreynsla æskileg
· Tölvu og bókhaldsfærni æskileg
· Samskiptafærni, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum
· Skipulagshæfileikar, frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1.apríl og starfshlutfall er 100%
Upplýsingar um starfið veitir Guðrún Kristinsdóttir, formaður Völsungs í síma 867-9420 eftir kl. 16 eða netfang gudrunkris@borgarholsskoli.is og volsungur@volsungur.is
Umsóknir sendist á ; gudrunkris@borgarholsskoli.is og volsungur@volsungur.is
eða Völsungur, Guðrún Kristinsdóttir Stóragarði 8, 640 Húsavík
Umsóknarfrestur er til 15.febrúar 2014