Skila þarf umsóknum í Ferðasjóð íþróttafélaga fyrir miðnætti 10. janúar
Aðildarfélög KSÍ eru minnt á að umsóknarfrestur í Ferðasjóð íþróttafélaga er til miðnættis, föstudagsins 10. janúar. Aðildarfélög eru hvött til þess að nýta sér þennan sjóð en öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Nánari upplýsingar má fá hjá ÍSÍ og með því að smella á tengilinn hér að neðan.