A karla - Vináttulandsleikur gegn Austurríki
Knattspyrnusambönd Íslands og Austurríkis hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik þann 30. maí næstkomandi. Leikið verður í Austurríki en þetta er í þriðja skiptið sem karlalandslið þessara þjóða mætast.
Fyrri tveir landsleikirnir fóru báðir fram árið 1989 en þjóðirnar léku þá saman í riðli í undankeppni HM 1990. Markalaust jafntefli varð á Laugardalsvelli en heimamenn höfðu betur, 2 – 1, þegar leikið var í ytra. Austurríki er í 46. sæti á styrkleikalista FIFA sem stendur en Ísland í 49. sæti.