Styrkleikalisti FIFA - Ísland niður um fjögur sæti
Íslenska kvennalandsliðið fellur um fjögur sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland er nú í 19. sæti listans en Bandaríkin eru sem fyrr í efsta sæti listans og Þjóðverjar koma þar næstir.
Af mótherjum Íslands í undankeppni HM er það að frétta að Danir eru í 13. sæti, Sviss í 22. sæti og Serbía í 44. sæti. Ísrael er í 55. sæti og Malta í 87. sæti styrkleikalistans.