U17 og U19 karla - Dregið í milliriðla og undankeppni EM á fimmtudag
Á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember, verður dregið í milliriðla EM 2014 hjá U17 og U19 karla og í undankeppni EM 2015 hjá sömu aldursflokkum. Ísland verður í öllum pottum þegar dregið verður í höfuðstöðvum UEFA en hægt verður að fylgjast með á heimasíðu UEFA og hefst fyrsti drátturinn kl. 08:00 að íslenskum tíma.
Ísland er í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í milliriðla hjá U17 karla fyrir EM 2014 en flokkarnir eru fjórir. Dregið verður í sjö riðla og komast sigurvegarar hvers riðils í úrslitakeppnina auk gestgjafanna en úrslitakeppnin fer fram að þessu sinni á Möltu, 9. - 21. maí.
Hjá U19 karla er Ísland í fjórða styrkleikaflokki þegar dregið verður í milliriðla fyrir EM 2014 og er sama fyrirkomulag þar og hjá U17 karla. Úrslitakeppnin þar fer fram í Ungverjalandi, 19. - 31. júlí.
Dagurinn hefst hinsvegar á því að dregið verður í undankeppni EM 2015 hjá U17 karla og er Ísland þar í efri styrkleikaflokki. Dregnar eru tvær þjóðir úr hvorum styrkleikaflokki en riðlarnir verða alls 13 talsins. Tvær efstu þjóðirnar komast áfram í milliriðla ásamt fimm þjóðum með bestan árangur í þriðja sæti úr riðlunum þrettán.
Einnig verður dregið í undankeppni EM 2015 hjá U19 karla og er Ísland þar einnig í neðri styrkleikaflokki. Nákvæmlega sama fyrirkomulag er á keppninni eins og hjá U17 karla og var útlistað hér að ofan.