Umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga hjá ÍSÍ
Ferðasjóður íþróttafélaga hefur fengið árlegt framlag á Fjárlögum Alþingis, allt frá árinu 2007, til úthlutunar til íþrótta- og ungmennafélaga í landinu vegna keppnisferða innanlands. Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var falin umsjón á útreikningi og úthlutunum úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til miðnættis 10. janúar næstkomandi.
Styrkjum er úthlutað eftirá, í febrúar hvers árs, vegna keppnisferða ársins á undan.
Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Smelltu hér til að fara á rafrænt umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga