Mætum tímanlega á Ísland - Króatía
Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Króatíu sem hefst kl. 19:00, föstudaginn 15. nóvember. Hlið Laugardalsvallar ljúkast upp kl. 18:00. Þá geta þeir sem t.d. hafa átt í vandræðum með að prenta út miða sína, komið í miðasölu Laugardalsvallar frá kl. 16:00 á leikdag.
Löngu uppselt er á leikinn og því nauðsynlegt að vera tímanlega mættur á völlinn til að forðast óþarfa biðraðir. Þá er minnt á að strætisvagnar stoppa víðsvegar í kringum Laugardalinn og geta verið afar góður kostur fyrir marga vallargesti.