U17 og U19 karla - Úrtaksæfingar um helgina
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og fara æfingarnar fram í Kórnum og í Egilshöll. Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Kristinn R. Jónsson, hafa valið leikmenn fyrir þessar æfingar en tveir hópar munu æfa hjá U19 karla.