Serbía-Ísland kl. 13:00 í dag - Byrjunarliðið tilbúið
A landslið kvenna mætir Serbíu í undankeppni HM 2015 í dag, en leikið er á heimavelli FK Obilic í Belgrad. Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og verður fylgst með gangi mála á Facebook-síðu KSÍ, auk þess sem textalýsing verður á vef UEFA. Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Þóra Helgadóttir
Hægri bakvörður: Dóra María Lárusdóttir
Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir
Miðverðir: Glódís Perla Viggósdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir
Tengiliðir: Sara Björk Gunnarsdóttir og Sif Atladóttir
Hægri kantur: Katrín Ómarsdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherjar: Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði og Harpa Þorsteinsdóttir