Miðasala á Króatía - Ísland í umspili fyrir HM 2014
Króatía og Ísland mætast í umspili um sæti í lokakeppni HM 2014 í nóvember, eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um. Seinni leikurinn fer fram á Maksimir-leikvanginum í Zagreb kl. 20:15 að staðartíma.
KSÍ hefur fengið miða hjá króatíska knattspyrnusambandinu fyrir íslenska áhorfendur og kostar miðinn 5.500 krónur. Panta þarf miða í síðasta lagi miðvikudaginn 6. nóvember. Greiðsla þarf að berast sama dag. Sendið tölvupóst á Ragnheiði Elíasdóttur (ragnheidur@ksi.is) með eftirfarandi upplýsingum:
- Nafn (á greiðanda)
- Kennitala
- Heimilisfang (ef senda á miðana: Express ábyrgðarsending kostar 1.745 krónur)
- Fjöldi miða
Hægt er að hringja inn kreditkortaupplýsingar (510-2905).
Miðar eru afhentir/sendir eftir 6. nóvember. Afhending á skrifstofu KSÍ, sem er opin alla virka daga milli kl. 08:00-16:00.
Gagnlegar yfirlitsmyndir hér að neðan. Hólf íslenskra stuðningsmanna er í vesturstúku (rautt svæði) og er nr. 10.