A kvenna - Margrét Lára nýr fyrirliði
Margrét Lára Viðarsdóttir er nýr landsliðsfyrirliði en þetta tilkynnt landsliðsþjálfarinn, Freyr Alexandersson, á fundi með leikmönnum í gærkvöldi. Margrét Lára tekur við fyrirliðabandinu af Katrínu Jónsdóttur sem lagt hefur landsliðskóna á hilluna. Viðtal við nýjan fyrirliða má sjá með því að smella á tengilinn hér að neðan en þar er einnig hægt að finna viðtöl við Guðbjörgu Gunnarsdóttur og Dagnýju Brynjarsdóttur frá því á æfingunni í dag. Tengillinn vísar á Youtube síðu KSÍ og þar er að finna fleiri viðtöl frá Serbíu.
Æft var á keppnisvellinum, FK Obilic Stadium, í dag en sá völlur tekur um 4.600 manns í sæti. Völlurinn sjálfur er í þokkalegu standi, var ansi harður á æfingunni í dag en til stendur að vökva hann fyrir leik sem ætti að hjálpa til. Allir leikmenn hópsins tóku þátt á fullu á æfingunni og er staðan á hópnum góð, engin meiðsli eða veikindi að plaga leikmenn.
Leikurinn sjálfur hefst svo á morgun, fimmtudag, kl. 14:00 að staðartíma eða kl. 13:00 að íslenskum tíma. Nokkuð óvenjulegur leiktími en ekki eru flóðljós á vellinum og hér í Belgrad dimmir hratt og fljótt en myrkur skellur á rétt fyrir kl. 17:00.
Fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ en einnig er textalýsing á heimasíðu UEFA.