Karlalandsliðið í 46. sæti á FIFA-listanum
Ísland er í 46. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið og fer upp um 8 sæti milli mánaða. Hæst hefur íslenska liðið ná í 37. sæti, en það var í september 1994 og í sama mánuði ári síðar. Lægsta staða Íslands á listanum var 131. sæti í apríl 2012, þannig að á einu og hálfu ári hefur klifið verið ansi hratt.
Spánverjar skipa sem fyrr efsta sæti listans og Svisslendingar, sem voru með Íslandi í riðli í undankeppni HM 2014, eru komnir inn á topp 10.