Keflavík sektað vegna framkomu stuðningsmanna
Á fundi Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ 8. október 2013 var samþykkt að sekta Keflavík um 30.000 krónur vegna framkomu stuðningsmanna félagsins í leik Keflavíkur og ÍBV í Pepsi-deild karla 22. september síðastliðinn.