Mætum tímanlega á Ísland - Kýpur
Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Kýpurs sem hefst kl. 18:45. Hlið Laugardalsvallar ljúkast upp kl. 17:45.
Löngu uppselt er á leikinn og því nauðsynlegt að vera tímanlega mættur á völlinn til að forðast óþarfa biðraðir. Þá er minnt á að strætisvagnar stoppa víðsvegar í kringum Laugardalinn og geta verið afar góður kostur fyrir marga vallargesti.