U21 karla - Hópurinn sem mætir Frökkum á Laugardalsvelli
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Frökkum í undankeppni EM en leikið verður á Laugardalsvelli, mánudaginn 14. október kl. 18:30.
Þarna er um sannkallaðan stórleik að ræða þar sem báðar þessar þjóðir eru með fullt hús stiga í riðlinum, Íslendingar eftir fjóra leiki en Frakkar eftir tvo leiki. Miðasala á leikinn er hafin og fer hún fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.