U17 kvenna - Byrjunarliðið gegn Spánverjum
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið byrjunarliðið sem mætir Spánverjum í lokaleik liðsins í milliriðli EM sem leikinn er í Rúmeníu. Leikurinn hefst kl. 08:00 að íslenskum tíma á morgun, laugardag, en íslensku stelpurnar eru með þrjú stig eftir 2 leiki.
Minnt er á textalýsingu á heimasíðu UEFA.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Selma Líf Hlífarsdóttir
Hægri bakvörður: Erna Guðrún Magnúsdóttir
Vinstri bakvörður: Arna Dís Arnþórsdóttir, fyrirliði
Miðverðir: Bergrós Lilja Jónsdóttir og Hrefna Þuríður Leifsdóttir
Tengiliðir: Lillý Rut Hlynsdóttir og María Eva Eyjólfsdóttir
Hægri kantur: Hulda Hrund Arnarsdóttir
Vinstri kantur: Hulda Ósk Jónsdóttir
Sóknartengiliður: Bryndís Rún Þórólfsdóttir
Framherji: Esther Rós Arnarsdóttir