A karla - Norski hópurinn sem mætir Íslendingum
Norðmenn hafa tilkynnt landsliðshópinn sem mætir Slóveníu og Íslendingum í undankeppni HM á næstu dögum. Þetta er fyrsti landsliðshópurinn sem nýr landsliðsþjálfari, Per Mathias Hogmo, velur en Norðmenn mæta Slóvenum á útivelli 11. október og svo Íslendingum í Osló, 15. október.