U19 kvenna - Franskur sigur í síðasta leiknum
Frakkar lögðu Íslendinga í lokaleik undankeppni EM en riðillinn var leikinn í Búlgaríu. Lokatölur urðu 3 - 0 fyrir Frakka og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Fyrir leikinn höfðu báðar þjóðirnar tryggt sér sæti í milliriðlum.
Frakkar voru sterkari aðilinn allan tímann og komust yfir strax á 2. mínútu og bættu svo við marki 10 mínútum síðar. Þriðja markið leit dagsins ljós á 28. mínútu og ljóst að róðurinn yrði þungur hjá íslenska liðinu. Síðari hálfleikurinn var svo markalaus svo Frakkar fögnuðu sigri og efsta sæti í riðlinum. Íslendingar enduðu svo í öðru sæti og Slóvakar í því þriðja, eftir sigur á Búlgaríu í dag.